Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Hærra, minn Guð

1. Hærra, minn Guð, til þín, hærra til þín,
enda þótt öll sé kross upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

2. Villist ég vinum frá vegmóður einn,
köld nóttin kringum mig, koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín.
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

3. Sofanda sýndu þá sólstigans braut
upp í þitt eilífa alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

4. Árla ég aftur rís ungur af beð.
Guðs hús á grýttri braut glaður ég hleð.
Hver og ein hörmung mín hefur mig, Guð, til þín,
hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.

5. Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjól,
hátt yfir stund og stað, stjörnur og sól,
hljómi samt harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín :,:
hærra til þín!

Sarah F. Adams – Matthías  Jochumsson

Hljóðdæmi