Kjarninn í trú okkar
Fíladelfía er fyrst og fremst kristin kirkja.
Fíladelfía getur skrifað undir allar grunntrúarjátningar
kristinnar kirkju í gegnum aldirnar og tekur mikinn
þátt í samkirkjulegu starfi. Það má segja að
megináhersla okkar sé sú að trúin sé ekki innantómt
form eða venja.
Við trúum á Guð sem heyrir bænir, við fylgjum Jesú
sem huggar þá sem eru sorgbitnir, gefur þeim von sem
skortir von og þeim tilgang sem eiga ef til vill allt en
skortir þó það sem öllu máli skiptir. Við trúum á
Heilagan anda, sem er vinur á trúargöngunni dag
hvern og gefur okkur kraft til að takast á við áskoranir
og vera verkfæri Guðs til þess að þjóna öðrum.
Við trúum því að allir menn þurfi á Guði að halda.
Við trúum því að Jesús Kristur sé eina leiðin til Guðs
og menn þiggi frelsi og líf frá honum án verðskuldunar,
algjörlega af náð.
Við trúum því að það sé rangt að dæma fólk og við
viljum taka vel á móti öllum, eins og Jesús gerir.

Trúarjátning Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi
- Við trúum að Biblían sé innblásið og áreiðanlegt orð Guðs.
(2. Tím. 3:16)
2. Við trúum á einn eilífan Guð, þríeinan, Föður, Son og
Heilagan anda.
(Jes. 40:28; Matt. 3:16-17; Jóh. 1:18; 10:30)
3. Við trúum á Jesú Krist, Guðs einkason, getinn af Heilögum
anda, fæddan af Maríu mey.
Hann sem var Guð, svipti sig öllu og kom fram sem maður,
mannlíf hans var syndlaust og fullkomið.
(Lúk. 1:35; Fil. 2:7; Heb. 4:15)
4. Við trúum því að fyrirgefning synda og friður við Guð fáist
aðeins vegna fórnardauða Jesú Krists. Sú fórn var fullkomin og
nægir til réttlætingar fyrir alla þá sem iðrast synda sinna.
Réttlæting fæst af náð, fyrir trú, án verðskuldunar og er gjöf
Guðs til allra sem játast Jesú Kristi.
(Jóh. 3:16; Efes. 2:8; Kól. 2:13-15; Róm. 10:9-10)
5. Við trúum því að Jesús hafi risið líkamlega upp frá dauðum,
stigið til himna og sitji til hægri handar Guði föður.
(Jóh. 20:20; Post. 1: 1-3, 9; 1 Kor. 15:3-4)
6. Við væntum endurkomu Jesú Krists, þegar hann hrífur kirkju
sína til fundar við sig. Eftir fyrirheiti hans væntum við nýs
himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr.
(Post. 1:9-11; Opb. 21:1; 2. Pét. 3:13)
7. Þeir sem velja að fylgja Jesú Kristi fá Heilagan anda að gjöf.
Hann umbreytir hugsun og hegðun eins og Biblían kennir. Hinn
kristni verður með tímanum líkari Jesú í orði, verki og
viðhorfum.
(Galatabréfið 5:22-23; Róm.12:2; 2. Kor.5:17; Heb.12:14;
2.Pét. 3:11)
8. Við trúum á gildi skírnar Heilags anda og náðargjafanna eins
og þeim er lýst í Nýja Testamentinu.
(Post. 1:8; 1. Kor. 12 og 14; Efesus. 4:11-12)
9. Við trúum að kristin kirkja sé stofnuð af Jesú til að vera
farvegur fyrir verk Guðs á jörðinni, að skírn í vatni sé aðeins
fyrir þá sem hafa tekið á móti Jesú Kristi sem frelsara sínum.
Við skírum með niðurdýfingu, til Drottins Jesú Krists í nafni
þrenningarinnar. Heilög kvöldmáltíð hefur einungis gildi fyrir þá
sem hafa tekið við náð Guðs og eru lærisveinar Jesú Krists.
(Kól. 1:18, Matt. 28:19)
10. Við trúum á eilíft líf hinna endurleystu á himni og eilífa
glötun þeirra er hafna hjálpræðinu.
(Matt. 25:46; Jóh.3:16; 1. Þess. 4:17)