Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Kristur hér við krossinn þinn

1. Kristur, hér við krossinn þinn
kærleiks-lindin streymir.
Angurmæddum, enn sem fyrr,
öllum huggun geymir.

Kór: Af hans kross, af hans kross
aðeins vil mér hrósa.
Uns ég fagra eilífð sé,
annað vil ei kjósa.

2. Hér við krossinn fyrst ég fann
frelsið náðar kæra.
Mild þá skein við minni sál
morgunstjarnan skæra.

3. Hér við krossinn leit ég ljóst
lamb Guðs þjást og deyja.
Skjól mér vel í skugga þess,
skal þar lifa´ og þreyja.

4. Hér við krossinn, Kristur, þinn,
krýp ég, bið og vaki.
Óðar fögur eilífð skín
öll er neyð að baki.

Fanny J. Crosby - Ásmundur Eiríksson

Hljóðdæmi