Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Ó, hve dýrðleg er að sjá

1. Ó, hve dýrðleg er að sjá
alstirnd himinfesting blá,
þar sem ljósin gullnu glitra,
glöðu leika brosi og titra,
:,: og oss benda upp til sín. :,:

2. Nóttin helga hálfnuð var,
huldust nærfellt stjörnurnar,
þá frá himinboga´ að bragði
birti´ af stjörnu´,um jörðu lagði
:,: ljómann hennar sem af sól. :,:

3. Þegar stjarna´ á himni hátt
hauður lýsir miðja nátt,
sögðu fornar sagnir víða,
sá mun fæðast meðal lýða
:,: konungur sem æðstur er. :,:

4. Vitringar úr austurátt
ei því dvöldu´,  en fóru brátt
þess hins komna kóngs að leita,
kóngi lotning þeim að veita,
 :,: mestur sem að alinn er. :,:

5. Stjarna skær þeim lýsti leið,
leiðin þannig varð þeim greið,
uns þeir sveininn fundu fríða,
fátæk móðir vafði´ hinn blíða
:,: helgri´ í sælu´ að hjarta sér. :,:

6. Stjarna veitt oss einnig er
og ef henni fylgjum vér,
hennar leiðarljósið bjarta
leiða´ um jarðar húmið svarta
:,: oss mun loks til lausnarans. :,:

7. Villustig sú aldrei á
undrastjarnan leiðir há.
Orðið Guðs hún er hið skæra,
oss er Drottinn virtist færa,
:,: svo hún væri' oss leiðarljós.:,:

N. F. S. Grundtvig - Stefán Thorarensen.

Hljóðdæmi