Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Það er sól í sálu minni í dag

1. Það er sól í sálu minni' í dag
og sumarmorgun rós,
og ég er jafnan himinsæll,
því Jesús er mitt ljós.

Kór: Eilíft sólskin, eilíft sólskin,
meðan áfram rennur tímans hjól.
Til mín Jesú auglit brosir blítt,
eins og björtust morgunsól.

2. Það er sæla' í minni sál í dag,
hún syngur þakkargjörð,
og Jesús heyrir hjartans tón,
sem hér ei næst á jörð.

3. Það er vor svo dýrðarbjart í dag,
því Drottinn er mér nær.
Í hug mér anga himinblóm
og hörpu dúfan slær.

4. Það er unun, ást og von í dag
í anda mínum hér,
ég hefi fjársjóð helgan, sem
á himni geymdur er.

Eliza Hewitt – Sigurbjörn Sveinsson

Hljóðdæmi